3 herbergja lúxus íbúð á Playa Paraiso, Tenerife til leigu
Íbúðin er glæný og staðsett í nýju fjölbýlishúsi rétt hjá HardRock hótelinu á Adeje ströndinni. Frábær sólbaðsaðstaða og sundlaug er í húsinu og ströndin er aðeins í 5 mínútna göngufæri. Íbúðin er 3ja herbergja 75fm vel búin húsbúnaði og tækjum og öllum nútíma þægindum eins og háhraða interneti, snjallsjónvörpum, þvottavél, þurrkara, uppþvottavél og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Öryggisgæsla er í húsinu allan sólarhringinn og Matvöruverslanir, apótek, barir og líkamstræktarstöðvar eru í næsta nágrenni.